Gönguleiðir Austurland Víknaslóðir Borgarfjörður Brúnavík,

Gönguleiðir Ísland

GPS

GÖNGULEIÐIR Á AUSTURLANDI
VÍKNASLÓÐIR 1 - 2
BORGARFJÖRÐUR - BRÚNAVÍK

.

.

Ferðaáætlanir
Rútur-Ferjur-Flug


Ferðaheimur

1. Borgarfjörður - Brúnavík um Brúnavíkurskarð (400m)
2 klst. 4,5 km.
Fremur létt ganga, en nokkuð bratt á köflum niður í Brúnavík. Greinilegur gamall stígur um graslendi og mela. Áður aðalleiðin til Brúnavíkur.
Gengið er frá sjónvarpsmastri á Hamri.   Mjög gott útsýni til Dyrfjalla og yfir allan Borgarfjörð. 

2. Borgarfjörður - Brúnavík um / Hofstrandarskarð ( 321m)
3 klst. 7,3 km.
Létt ganga eftir grófri jeppaslóð yfir skarðið og um gras- og votlendi út víkina.

Lagt af stað frá Hólahorni við Hofstrandarsand.  Gengið að hluta upp mjög grófan jeppaveg.  Á vinstri hönd er Helgárgil, mjög litfagurt líparítgil. 

Þegar komið er yfir skarðið er hægt að stytta sér leið með því að halda niður með læk vinstra megin við veginn.   Jeppavegurinn nær niður að Brotagili en þar greinast gönguleiðirnar annars vegar út víkina og hinsvegar yfir Súluskarð.   Athugið að út víkina eru talsverðar mýrar.  Í Brúnavík gæti vantað stikur inn á milli því hross vilja gjarnan éta þær.

Sannir göngumenn skilja aðeins sporin sín eftir og taka aðeins með sér minningarnar!


TIL BAKA          Nat.is - pósthólf 8593, 108 Reykjavik- sími: 898-0355 - nat@nat.is- um okkur - heimildir          HEIM