|
Gönguleiðir
á austurlandi víknaslóðir 8,

Gönguleiðir
Ísland |
GÖNGULEIÐIR Á
AUSTURLANDI
VÍKNASLÓÐIR 8

8. Borgarfjörður - Loðmundarfjörður „háls og heiði“
8a. Þverárbrú – Húsavíkurskáli.
3 – 4 klst. 11 km.
Létt ganga, að mestu á góðum jeppavegi, um Húsavíkurheiði (477 m).
Hér má fara á nokkrum stöðum út fyrir bílveg en þó er
bent á að kynna
sér svæðið vel áður.
8b. Húsavíkurskáli – Húsavíkurbær
1 klst.
Gengið að mestu eftir góðum jeppavegi. Vaða eða stikla þarf eina litla
á, Dallandsá.
Skemmtileg ganga en gott er að reikna með 2,5 - 3 klst í hana.
Húsavíkurkirkja er lítil snotur bændakirkja sem alltaf er opin.
Bænum í Húsavík er vel við haldið og er nýttur mikið af eigendum yfir
sumartímann. Virðið reglur um umferð á svæðinu. Fallegt er að
ganga frá kirkjunni út á sjávarbakkan og niður að gamla kirkjugarðinum
á bakkanum en hann er frægur fyrir það að undanfarna áratugi hefur
verið að brotna af garðinum og í ljós koma kistur og mannabein.
Þetta hefur þó minnkað mikið síðustu árin.
8c. Húsavíkurskáli – Stakkahlíð
4 – 5 klst. 12 km.
Nokkuð létt ganga eftir jeppavegi upp á Nesháls (435m), en þaðan að
mestu eftir melum og grónu landi.
Af Neshálsi er ágætt að fara út af vegi og inn að Hryggjarbrekku og
þaðan niður að Nesi. Hægt er svo að ganga inn bakkana og þannig að
sleppa að miklu leiti við akveginn. Þessi leið er lítið stikuð svo
rétt er að fylgja vegi ef þoka er.
Sannir göngumenn skilja aðeins sporin sín eftir og taka aðeins með sér
minningarnar!
.
|
.

Ferðaáætlanir
Rútur-Ferjur-Flug

Ferðaheimur |