|
Fjölskyldugerð:
Högni, læða og kettlingur.
Þyngd: 2-4 kg.
Fengitími: allt árið.
Meðgöngutími: um 60 dagar.
Fjöldi afkvæma: 3-5 kettlingar í hverju goti.
Nytjar: Eru kelirófur og því manninum til skemmtunar!
Íslenski kötturinn
hefur fylgt manninum allt frá landnámi. Íslenzka
kattarkynið hefur haldizt nokkuð vel í gegnum
tíðina en nú í dag er orðið svo mikið um innflutning á köttum að
einhver blöndun hefur átt sér stað.
Í gamla daga var
kötturinn mikið nytjadýr á Íslandi. Hlutverk hans var að halda rottum
og músum frá híbýlum manna.
Í
Fjölskyldu-og
húsdýragarðinum er reynt að sýna öll íslensk húsdýr og eru kettirnir
engin undantekning. Eins og flestir vita þá fer kötturinn sínar eigin
leiðir og því tilviljun háð hvort hinn almenni gestur sjái kettina í
garðinum. Þeir búa með starfsfólkinu í skrifstofuhúsnæði garðsins og
una sér þar vel meðal ljósritunarvéla og skrifborðsstóla.
Heimild: Efni af vef
Húsdýragarðsins í Laugardal. |