Íslensku hænsnin,

Meira um Ísland


ÍSLENZKU HÆNSNIN
.

.

Ferðaáætlanir
Rútur-Ferjur-Flug


Ferðaheimur

Fjölskyldugerð: hani, hæna og hænuungi.
Þyngd: 1,5-2,0 kg
Fengitími: allt árið.
Útungunartími: 21 dagur.
Fjöldi afkvæma: 10-12 hænuungar.
Nytjar: egg og kjöt.

Íslenzk hænsn eru líklega beinir afkomendur landnámsaldarhænsna (haughænsna).

Hænurnar eru litlar og harðgerðar og skarta öllum regnbogans litum þegar sólin skín.
Þessi tegund er þó ekki talin heppileg sem varphænur og eru ítölsku hvítu hænurnar alveg teknar við því hlutverki á Íslandi.

Líftími íslenska hænsnanna er þó lengri en hvítu Ítalanna, þannig að þegar til lengri tíma er litið, verpa þær sennilega jafnmikið.

Góð varphæna getur orpið allt að 300 eggjum á ári.

Heimild:  Efni af vef Húsdýragarðsins í Laugardal.


TIL BAKA          Nat.is - pósthólf 8593, 108 Reykjavik- sími: 898-0355 - nat@nat.is- um okkur - heimildir          HEIM