upplýsingar um fjallabak landmannaleið,

Gönguleiðir á Íslandi


Gisting & tjaldst.
Hálendið


UPPÝSINGAR
FJALLABAK NYÐRI
LANDMANNALAUGAR-SKAFTAFELL

Áður en haldið er á hálendið ber að athuga ástand fjallvega en þar eru óbrúaðar ár.
 Komið við á upplýsingamiðstöðvum áður haldið er á hálendið!


Hella


Arnes/Þjórsádalur


Kirkjubæjarklaustur

.

Ferðaáætlanir
Rútur-Ferjur-Flug

Skaftfellingar nefna þessa leið Fjallabaksveg og telja það eldra og réttara. Hún liggur á milli Landsveitar og Skaftártungu norðan Heklu og Torfajökuls. Þetta er einhver litskrúðugasta og fjölbreyttasta hálendisleið landsins. Í þurrkatíð er hún akfær flestum bílum, en þó er betra að hafa fjórhjóladrifið við höndina. Frá Sigölduvirkjun liggur 26 km löng leið suður í Landmannalaugar. Sé hin rétta Fjallabaks- eða Landmannaleið ekin upp úr Landsveit til austurs, er haldið upp Sölvahraun og beygt til hægri við vegprestinn, sem segir Dómadalsleið.

Þá er ekið á milli Hekluhrauna og hlíða, um Lambahraun, yfir óbrúaðar sprænur, um Kringlu og Dómadal. Þá kemur Frostastaðavatn, þar sem leiðin kvíslast í þrjár áttir. Til vinstri liggur leiðin að Sigöldu, beint áfram að Ljótapolli og til hægri til Landmannalauga eða áfram austur í Skaftártungu. Jökulgilskvísl, sem var versti farartálminn á leiðinni hefur verið brúuð. Austan hennar er ekið um Kýlinga, við rætur Kirkjufells, um Illagil og Jökuldali að Herðubreiðarhálsi. Þar opnast útsýnin til austurs yfir Eldgjá og Lakagíga á Síðuafrétti. Einnig sést til Langasjávarsvæðisins, Fögrufjalla og Tungnárfjalla og inn á Vatnajökul vestanverðan. Síðan er haldið niður í Eldgjá, yfir Syðri-Ófæru og niður Skaftártungu.

Skálar eru víða á leiðinni, s.s. í Landmannahelli, Landmannalaugum, Kýlingum og Hólaskjóli. Það er óhætt að fullyrða, að þessi landshluti lætur engan sem um hann fer, ósnortinn. Austurleið hf. heldur uppi áætlunarferðum um Fjallabaks- eða Landmannaleið á hverjum degi á sumrin með viðkomu í Landmannalaugum og Eldgjá
.
.


 


BACK               Nat.is - Box 8593 108 Reykjavik- tel.: +354-898-0355 - nat@nat.is - about us - sources               HOME