|
Kaldidalur er stytztur hinna þriggja höfuðfjallvega landsins frá suðri
til norðurs. Hann liggur á milli Oks og Langjökuls og hæsti hluti
hans, efsti hluti Langahryggjar, liggur í 727 m hæð yfir sjó.
Yfirleitt er hann fær flestum farartækjum þrjá til fimm mánuði á ári.
Líkt og hinir eystri fjallvegir landsins var Kaldidalur mjög
fjölfarinn fyrrum, einkum milli efstu bæja í Þingvallasveit og
Borgarfirði. Þetta er fyrsti fjallvegur landsins, sem var ruddur árið
1830. Ofan af Langahrygg getur útsýni verið gott, s.s. til
Prestahnjúks og mynnis Þórisdals, sem koma fyrir í þjóðsögum og
Grettissögu. Syðst á Kaldadal er ein af fáum beinakerlingum landsins
og hún er þónokkuð notuð af mismunandi hagyrtum ferðamönnum enn þá.
Norðan Kaldadals er tangi milli jökulsánna Geitár og Hvítár.
Getið er um allþétta byggð á Geitlandi á
öldum áður. Þar á líka að hafa verið hverinn Skrifla, sem flutti sig
tvisvar um set, fyrst eftir að blóðug föt manns, sem var veginn
blásaklaus, voru þvegin þar. Skrifla endaði síðan niðri í Reykholti og
úr hvernum rennur vatnið í Snorralaug hina fornu. Skúlaskeið, sem var
talið einhver stórgrýttasti vegur landsins, er nokkuð norðan
Langahryggjar. Það varð Grími Thomsen að yrkisefni í kvæðinu
„Skúlaskeið”, sem hann byggði á þjóðsögu og allir urðu að læra í
skóla.
Um Kaldadal eru engar áætlunarferðir nema dagsferðir, sem
ferðaskrifstofur bjóða, aðallega frá Reykjavík.

Svæðakort
Suðurströndin
<>
Kaldidalur <>
Suðvesturland
<>
Miðsuðurland <>
Geysir
og Suður-Kjölur
<>
Sprengisandur |