upplýsingar kjölur kjalvegur,

Gönguleiðir Ísland


Gisting & tjaldst.
Hálendið


UPPLÝSINGAR
KJÖLUR
(F-35)

Komið við á upplýsingamiðstöðvum áður haldið er á hálendið
.


Hveragerdi


Varmahlíð


Gullfoss/Geysir

.

Ferðaáætlanir
Rútur-Ferjur-Flug

Kjölur

Kjölur er svæðið milli Langjökuls í vestri og Hofsjökuls í austri, Hvítár í Suðri og Seyðisár og Svörtukvíslar í norðri. Þetta svæði liggur í 600 - 700 m hæð yfir sjó. Rétt norðan við miðju svæðisins er hraundyngja (840m), sem kallast Kjalhraun. Rammi þess að austan og sunnan eru berar jökulöldur og sandar. Lágreist fell rísa upp af sléttunni, s.s. Kjalfell, Rjúpnafell og Dúfunefsfell. Kjalarsvæðið er víðkunnugt fyrir fagra fjallasýn á góðum degi. Fyrrum hefur verið mun meiri gróður á Kili en nú. Gróðursvæðin, sem eftir eru, er aðallega að finna á Hvítárnesi, Tjarnarheiði og í Þjófadölum auk gróðurteyginga við vötn, ár og læki. Í sunnanverðu Kjalhrauni eru líka gróðurblettir. Hveravellir eru eina jarðhitasvæði Kjalar, en um þá er fjallað sérstaklega. Það er óhætt að segja, að landslag og náttúra Kjalar sé einkar fjölbreytt og svæðið er upplagt til lengri og skemmri gönguferða allt árið.  Fyrrum var Kjölur afréttur og eign Auðkúlu í Austur-Húnavatnssýslu en núna er hann afréttur Biskupstungna. Sundurdráttur fjár fór fram í Gránunesi, þegar svæðið tilheyrði Auðkúlu, en eftir að mæðiveikisgirðingin var sett upp norðan Hveravalla hefur slíkt verið óþarft. Önnur (Jón Eyþórsson) byggir á landslaginu í Kjalhrauni, sem lítur út eins og bátur á hvolfi séð sunnanfrá.Tvær kenningar eru uppi um tilurð nafns svæðisins, Kjölur. Hin (Guðmundur Kjartansson) gerir ráð fyrir að norska nafnið hafi verið yfirfært. Þetta örnefni er víða notað á landinu, þar sem eru vatnaskil, s.s. á Vestfjörðum. Kjalvegur er u.þ.b. 200 km langur á milli Gullfoss og Blöndudals. Eftir að Grjótá, Sandá og Seyðisá voru brúaðar er vegurinn orðinn fær öllum bílum á sumrin. SBA-Norðurleið hf. heldur uppi áætlunarferðum um Kjalveg á sumrin.


BACK               Nat.is - Box 8593 108 Reykjavik- tel.: +354-898-0355 - nat@nat.is - about us - sources               HOME