|
Öræfin eru austan
Vatnajökuls og upp af Lóni bera þetta nafn. Þau ná frá Skyndidal í
suðri að Geldingafelli í norðri og Hofsjökli og Jökulgisltindi og
Víðidalsdrögum í austri. Lónsöræfi
eru mjög sundurskorin af giljum og gljúfrum, mikið er af
ljósgrýti (ríólíti), þannig að landslagið er ákaflega litríkt. Líkt og
víðar á Austfjörðum finnst þar mikið af holufyllingum og fallegum
kristöllum. Víða er gróður talsverður, graslendi og blómskrúð. Oft
sjást hreindýr á þessum slóðum. Jeppaleiðin liggur frá Þórisdal yfir
Skyndidalsá að Eskifelli og síðan upp Kjarrdalsheiði (722m) og niður á
Illakamb við Ölkeldugil.
Þar verður að grípa til postulanna og ganga yfir hengibrú á Jökulsá í
Lóni. Lónsöræfi eru eitthvert fegursta og áhugaverðasta göngusvæði
landsins og þar eru víða skálar til
að gista í. Sumir ganga yfir Eyjabakka eða Eyjabakkajökul, ef
kvíslar Jökulsár á Dal eru óvæðar, alla leið að Snæfelli, þar sem er
skáli Ferðafélags Íslands. Á sumrin eru daglegar ferðir inn á Illakamb
frá Höfn í Hornafirði.
.
 |