|
Click the map for further information

Nú á dögum eru fáar fjallaleiðir eftir
fyrir þá, sem kæra sig ekki um uppbyggða vegi og brýr yfir allar
sprænur. Gæsavatnaleið liggur frá Tómasarhaga
og Hagakvísl á Sprengisandsleið
að Drekagili í Dyngjufjöllum. Komi fólk að vestan er um tvær leiðir að
velja í Vonarskarði, annars vegar yfir brú á Skjálfandafljóti, norðan
ármóta Rjúpnabrekkukvíslar og um hraunið norðan Trölladyngju. Þetta er
ekki hin rétta Gæsavatnaleið. Hún liggur sunnar og nær jöklinum. Sé
hún valin, þarf að leita að vaði á Skjálfandafljóti og
Rjúpnabrekkukvísl og fara með fullri gát, því að báðar árnar geta
verið hættulegir farartálmar. Síðan er farið um Gæsavötn, yfir
Dyngjuháls, fram hjá Kistufelli, yfir Urðarháls
og Flæður austan hans í átt að Holuhrauni, unz
komið er að Svartá, Vaðöldu og Drekagili. Gæsavatnaleið er stundum
erfið vegna snjófyrninga, einkum austan í Dyngjuhálsi, og seinfarin
(u.þ.b. 9 klst. milli Nýjadals og Drekagils). Hún er einungis fær
góðum fjallabílum og bezt er að vera með vönum mönnum, þegar farið er
í fyrsta skipti.
Leirurnar eða Flæðurnar austan Urðarháls eru varasamar óreyndum
ökumönnum. Þar þýðir ekki annað en að aka
óhikað og viðstöðulaust í lágu fjórhjóladrifi í fyrsta gír. Þar flæðir
fram yfirborðsvatn af jöklinum, einkum síðdegis á hlýjum dögum. Því er
ákjósanlegra að fara þar um snemma dags. Oft lendir
ferðafólk á þessum slóðum í sandstormi og sér ekki spönn frá rassi. Þá
er gott að hafa áttavita við höndina eða GPS-punkta til að aka rétta
leið. Þegar yfir er komið, er stefnan sett á vestanverða
Vaðöldu og milli hennar og Dyngjuvatns að Dreka, skála Ferðafélags
Akureyrar við Drekagil. Vestan Vaðöldu kemur bergvatnsáin Svartá upp
úr sandinum og rétt áður en hún sameinast kvíslum Jökulsár á Fjöllum
er fallegur foss, sem hefur verið nefndur Skínandi. Það er
ógleymanlegt ævintýri að fara þessa leið á góðum degi.
.
Svæðiskort
Sprengisandur
|