|
Baugsstaðaá rennur
niður Flóann í Árnessýslu og skiptir hreppum. Vestan hennar er
Hraungerðis- og Stokkseyrarhreppur, en austan Villingaholts-og
Gaulverjarbæjarhreppur.
Áin á upptök norðan Kampholts, og heitir þá
Bitrulækur. Neðar fær hún nafnið Hróarsholtslækur og neðst Baugsstaðaá og fellur
til sjávar (Baugstaðarós) austan við Stokkseyri. Bleikja, sjóbirtingur og lítið
eitt af laxi er í læknum, sem rennur um sléttlendi og er lengst af þröngur
graflækur, með djúpum hyljum og var notaður sem aðalskurður Flóaveitunnar.
Vegalengdin frá Reykjavík er u.þ.b. 75 km.

|