|
Þarna
geta fjölskyldur og einstaklingar notið heilbrigðrar útiveru
við veiðar í tjörn, sem silungi og laxi er sleppt í og
greiðir fyrir miðað við afla, leikið golf eða leigt sér
kæjaka og róið um í góðu veðri. Leiðin að Hvammsvík er ekki
löng frá höfuðborgarsvæðinu. Skammt frá suðurenda ganganna
undir Hvalfjörð eru vegamót til hægri, þar sem ekið er
svokallaða Hvalfjarðarleið og vegalengdin er u.þ.b. 50 km
frá Reykjavík. |