|
Sauðanesvatn er í Sauðaneshreppi í N-Þingeyjarsýslu.
Það er 0,18 km², 2-3 m djúpt og í 3 m hæ yfir sjó. Gunnlaugsá rennur í það og
úr því Litliós út í sjó.
Gott er að komast að vatninu, því það er við
bæjarvegginn á stórbýlinu Sauðanesi. Flugvöllur er skammt norðan þess. Bleikjan og
urriðinn úr vatninu er mjög góður fiskur og sjógenginn. Stangafjöldi er ekki
takmarkaður. Ekki er vitað til að netaveiði sé stunduð í vatninu.
Vegalengdin frá Reykjavík er 627 km um Hvalfjarðargöng og 8 frá Þórshöfn. |