|
Litlibær
í Skötufirði var í ábúð til ársins 1969, þegar jörðin fór í
eyði. Árið 1999 tók Þjóðminjasafnið íbúðarhúsið undir
sinn verndarvæng og hóf enduruppbyggingu þess.
Torfbærinn var upprunalega byggður árið 1894, Kringum
20 manns bjuggu í honum á tímabili en eftir 1917 bjó þar
aðeins ein fjölskylda. Grunnflötur bæjarins er 3,9 x
7,4 m (utanmál) og portbyggt loft er yfir jarðhæðinni.
Tvö eldhús voru skammt frá íbúðarhúsinu
og alls munu liðlega 20 manns
hafa búið í Litlabæ á tímabili. Frá árinu 1917 bjó aðeins
ein fjölskylda á jörðinni. Búið var í Litlabæ fram til 1969.
Meðal margra tótta innan og utan steinhlaðins veggjar umhverfis bæinn er
hringlaga fjárborg, sem er talin mun eldri en aðrar hleðslur við
Litlabæ.
Byggðasafn Vestfjarða á Ísafirði sér um sýningu
á búskaparháttum á fyrri hluta 20. aldar í bænum.
Túnið
er afmarkað af steinhlöðnum garði og mælist það um 3 hektarar.
Einstaklega vel hefur verið vandað til allra steinhleðslna.
Íbúarnir hafa lifað af sjávarnytjum ekki síður en
landbúnaði. |