|
Aðalból í er innsti bær í
Jökuldalshreppi og meðal þeirra bæja, sem eru lengst frá sjó á
landinu, 100 km í Héraðsflóa og 60 km í botn Berufjarðar.
Bærinn er þekktur úr sögu Hrafnkels Hallfreðarsonar Freysgoða.
Hrafnkelssaga er meðal styttri Íslendingasagna og þótti
trúverðug, m.a. vegna heils söguþráðar og ýkjulausrar
frásagnar, en margir hafa dregið hana í efa á síðari tímum.
Minjar um búsetu í Hrafnkelsdal til forna hafa fundizt á Aðalbóli
og annars staðar og örnefni í landi bæjarins minna á söguna.
Samkvæmt henni hafði Hrafnkell goðorð í Hrafnkelsdal og Jökuldal.
Hann var mikill fyrir sér og var „ójafnaðarmaður mikill, en
menntur vel". Hann hafði gefið hestinn Freyfaxa Frey til jafns
á móti sér, því hann hafði miklar mætur á því goði, og lagt
bann við að aðrir riðu hestinum en hann sjálfur.
Smali hans vann
sér það til óhelgi að ríða hestinum og Hrafnkell drap hann
umsvifalaust eins og hann hafði heitið. Af þessum sökum var
Hrafnkell dæmdur sekur og missti jörð og goðorð. Hann settist að
á Hrafnkelsstöðum í Fljótsdal og náði eignum sínum aftur og
bjó að Aðalbóli til dauðadags.
Gambramýrar eru í
landi Aðalbóls og þar örlar á jarðhita.
Upp úr Hrafnkelsdal liggur jeppavegur inn á Vesturöræfi að
Snæfellsskála og Eyjabökkum. |