|
Haukadalur gengur suður í fjallgarðinn sunnan
Dýrafjarðar. Haukadalsá fellur í Haukadalsbót.
Þarna bjó
Gísli Súrsson á Hóli. Hann var gerður útlægur fyrir að vega
mág sinn, Þorgrím Þorsteinsson, og var síðan drepinn að
Botni í Geirþjófsfirði (Gísla saga Súrssonar)
Í Haukadal eru ýmsir
staðir, sem koma við þessa sögu og sumir þeirra hafa verið
rannsakaðir (Sigurður Vigfússon). Tvær skálarústir fundust og
leitt var getum að því, að önnur þeirra væri leifar bæjar
Þorgríms goða. Á Gíslahóli fundust engar minjar en í
Vésteinshaugi fundust greinilegar minjar kumls.
Sögunni ber vel saman
við ýmiss örnefni í dalnum og staðhætti. Við víkina
Haukadalsbót var löggiltur verzlunarstaður 1892 með talsverðum
umsvifum um aldamótin og fram á 20. öldina. Þar var líka nokkur
vélbátaútgerð um tíma. Fyrsta frystihúsið í héraðinu var byggt
þar og síðar flutt inn á Þingeyri. Barnaskóli og samkomuhús voru
líka byggð þar.
Árið 1899 voru brezkir togarasjómenn næstum
búnir að drekkja Hannesi Hafstein, sýslumanni, þegar hann ætlaði
að góma þá í landhelginni. Báti hans var hvolft með þeim
afleiðingum að þrír menn drukknuðu, en sýslumaður og tveir aðrir
björguðust. Báturinn, sem um ræðir, er í vörzlu
Þjóðminjasafnsins. Fyrsti íslenzki skipstjórinn, sem stjórnaði
togara hér við land, Guðmundur Kristjánsson (1871-1949), fæddist í
Haukadal. |