|
Nú á dögum eru fáar fjallaleiðir eftir
fyrir þá, sem kæra sig ekki um uppbyggða vegi og brýr yfir allar
sprænur. Gæsavatnaleið liggur frá Tómasarhaga
og Hagakvísl á Sprengisandsleið
að Drekagili í Dyngjufjöllum. Komi fólk að vestan er um tvær leiðir að
velja í Vonarskarði, annars vegar yfir brú á Skjálfandafljóti, norðan
ármóta Rjúpnabrekkukvíslar og um hraunið norðan Trölladyngju. Þetta er
ekki hin rétta Gæsavatnaleið. Hún liggur sunnar og nær jöklinum. Sé hún
valin, þarf að leita að vaði á Skjálfandafljóti og Rjúpnabrekkukvísl og
fara með fullri gát, því að báðar árnar geta verið hættulegir
farartálmar. Síðan er farið um Gæsavötn, yfir Dyngjuháls,
fram hjá Kistufelli, yfir Urðarháls og Flæður austan hans
í átt að Holuhrauni, unz komið er að
Svartá, Vaðöldu og Drekagili. Gæsavatnaleið er stundum erfið vegna
snjófyrninga, einkum austan í Dyngjuhálsi, og seinfarin (u.þ.b. 9 klst.
milli Nýjadals og Drekagils). Hún er einungis fær góðum fjallabílum og
bezt er að vera með vönum mönnum, þegar farið er í fyrsta skipti.
Leirurnar eða flæðurnar austan Urðarháls eru
varasamar óreyndum ökumönnum. Þar þýðir ekki
annað en að aka óhikað og viðstöðulaust í lágu fjórhjóladrifi í fyrsta
gír. Þar flæðir fram yfirborðsvatn af jöklinum, einkum síðdegis á hlýjum
dögum. Því er ákjósanlegra að fara þar um snemma dags.
Oft lendir ferðafólk á þessum slóðum í sandstormi og sér ekki spönn frá
rassi. Þá er gott að hafa áttavita við höndina eða GPS-punkta til að aka
rétta leið. Þegar yfir er komið, er stefnan sett á vestanverða
Vaðöldu og milli hennar og Dyngjuvatns að Dreka, skála Ferðafélags
Akureyrar við Drekagil. Vestan Vaðöldu kemur bergvatnsáin Svartá upp úr
sandinum og rétt áður en hún sameinast kvíslum Jökulsár á Fjöllum er
fallegur foss, sem hefur verið nefndur Skínandi. Það er ógleymanlegt
ævintýri að fara þessa leið á góðum degi.
Beittu músinni á staðina
á kortinu til að finna nánari upplýsingar!

Svæðiskort
.
|