6 daga ferð:
Dagur 1. Reykjavík-Akureyri.
Ekið frá Reykjavík um Borgarfjörð og yfir Holtavörðuheiði til Norðurlands.
Það eru margir áhugaverðir staðir á leiðinni og víða hægt að á.
Upplýsingamiðstöðvar fyrir ferðamenn eru á Brú, í Staðarskála og í
Varmahlíð. Upplagt að gista í Skagafirði.
Dagur 2. Skagafjörður -Akureyri.
Skagafjörður er eitthvert söguríkasta svæði landsins.
Þaðan er haldið áfram yfir Öxnadalsheiði til Akureyrar. Þar er fjöldi
safna og margt annað til afþreyingar.
Dagur 3. Akureyri-Mývatn.
Þá er stefnt austur yfir Víkurskarð eða um Dalsmynni í
Fnjóskadal að Goðafossi og þaðan til Mývatns. Þar er af svo mörgu að
taka, að velja verður áhugaverðustu staðina.
Dagur 4. Mývatn-Húsavík-Ásbyrgi-Dettifoss-Egilsstaðir.
Eftir hálftíma akstur frá Mývatni blasir Húsavík við.
Þar er margt að sjá og gera, en þaðan er haldið yfir Tjörnes til Ásbyrgis í
Kelduhverfi og áfram að Dettifossi. Eftir það er ekið suður á
hringveginn og alla leið til Egilsstaða.
Dagur 5. Egilsstaðir-Höfn-Jökulsárlón-Skaftafell.
Skemmtilegast er að þræða Austfirðina. Þá er ekið um
Fagradal til Reyðarfjarðar og áfram suður. Margir aka um Skriðdal á
þjóðvegi 1 niður í Breiðdal eða um Öxi niður í Berufjörð, sem er stytzta
leiðin. Ekki er mikið úr vegi að kíkja á Höfn áður en haldið er að
Jökulsárlóni. Þá er haldið inn í Öræfi og gott að eyða nóttinni þar.
Dagur 6. Skaftafell-Kirkjubæjarklaustur-Vík-Reykjavík.
Dagurinn hefst með akstri yfir Skeiðarársand til
Kirkjubæjarklausturs, yfir Eldhraun og Mýrdalssand til Víkur. Þá taka
við Dyrhólaey, Skógafoss, Seljalandsfoss og Suðurlandsundirlendið áður en
höfuðborgarsvæðið birtist framundan.
10 daga
ferð:
Dagur 1. Reykjavík-Akureyri.
Ekið frá Reykjavík um Borgarfjörð og yfir Holtavörðuheiði til Norðurlands.
Það eru margir áhugaverðir staðir á leiðinni og víða hægt að á.
Upplýsingamiðstöðvar fyrir ferðamenn eru á Brú, í Staðarskála og í
Varmahlíð. Upplagt að gista í Skagafirði.
Dagur 2. Skagafjörður -Akureyri.
Skagafjörður er eitthvert söguríkasta svæði landsins.
Þaðan er haldið áfram yfir Öxnadalsheiði til Akureyrar. Þar er fjöldi
safna og margt annað til afþreyingar.
Dagur 3: Akureyri.
Það er heillaráð að taka daginn rólega og njóta umhverfisins
við Eyjafjörð, skoða Dalvík, Hrísey, Ólafsfjörð og Siglufjörð.
Dagur 4: Akureyri-Mývatn.
Þá er stefnt austur yfir Víkurskarð eða um Dalsmynni í
Fnjóskadal að Goðafossi og þaðan til Mývatns. Þar er af svo mörgu að
taka, að velja verður áhugaverðustu staðina.
Dagur 5: Mývatn.
Mývatnssvæðið er svo margslungið, að dagurinn dugar ekki til
þess að komast að öllum leyndardómum þess.
Dagur 6. Mývatn-Húsavík-Ásbyrgi-Dettifoss-Egilsstaðir.
Eftir hálftíma akstur frá Mývatni blasir Húsavík við.
Þar er margt að sjá og gera, en þaðan er haldið yfir Tjörnes til Ásbyrgis í
Kelduhverfi og áfram að Dettifossi. Eftir það er ekið suður á
hringveginn og alla leið til Egilsstaða.
Dagur 7. Egilsstaðir-Höfn-Jökulsárlón-Skaftafell.
Skemmtilegast er að þræða Austfirðina. Þá er ekið um
Fagradal til Reyðarfjarðar og áfram suður. Margir aka um Skriðdal á
þjóðvegi 1 niður í Breiðdal eða um Öxi niður í Berufjörð, sem er stytzta
leiðin. Ekki er mikið úr vegi að kíkja á Höfn áður en haldið er að
Jökulsárlóni. Þá er haldið inn í Öræfi og gott að eyða nóttinni þar.
Dagur 8: Skaftafell.
Enginn er svikinn af góðum degi í þjóðgarðinum.
Dagur 9: Skaftafell-Kirkjubaejarklaustur-Vik.
Dagurinn hefst með akstri yfir Skeiðarársand til
Kirkjubæjarklausturs, yfir Eldhraun og Mýrdalssand til Víkur. Tíminn
rennur úr greipum ferðalangsins á leiðinni, þegar hver skoðunarstaðurinn er
heimsóttur eftir öðrum.
Dagur
10:
Vík-Mýrdalsjökull-Gullfoss-Geysir-Reykjavik.
Þessi dagur býður fleiri möguleika en hægt
er að vinna úr á stuttum tíma. Þá er bara að velja áhugaverðustu
staðina, e.t.v. Reynishverfi, Dyrhólaey, Skóga, Seljalandsfoss, áður en
haldið er upp Skeið um Flúðir og Brúarhlöð að Gullfossi og Geysi. Þá
er komið að Skálholti, Kerinu, Hveragerði og Reykjavík.
Söguferð
umhverfis landið

 |