|
Skaftfellingar nefna
þessa leið Fjallabaksveg og telja það eldra og réttara. Hún liggur á
milli Landsveitar og Skaftártungu norðan Heklu og Torfajökuls. Þetta
er einhver litskrúðugasta og fjölbreyttasta hálendisleið landsins. Í
þurrkatíð er hún akfær flestum bílum, en þó er betra að hafa
fjórhjóladrifið við höndina. Frá Sigölduvirkjun liggur 26 km löng leið
suður í Landmannalaugar. Sé hin rétta Fjallabaks- eða Landmannaleið
ekin upp úr Landsveit til austurs, er haldið upp Sölvahraun og beygt
til hægri við vegprestinn, sem segir
Dómadalsleið.
Þá er ekið á milli Hekluhrauna og hlíða, um Lambahraun, yfir óbrúaðar
sprænur, um Kringlu og Dómadal. Þá kemur Frostastaðavatn, þar sem
leiðin kvíslast í þrjár áttir. Til vinstri liggur leiðin að Sigöldu,
beint áfram að Ljótapolli og til hægri til Landmannalauga eða áfram
austur í Skaftártungu. Jökulgilskvísl, sem var versti farartálminn á
leiðinni hefur verið brúuð. Austan hennar er ekið um
Kýlinga, við rætur Kirkjufells, um Illagil og
Jökuldali að Herðubreiðarhálsi. Þar opnast útsýnin
til austurs yfir Eldgjá og Lakagíga á Síðuafrétti. Einnig sést til
Langasjávarsvæðisins, Fögrufjalla og Tungnárfjalla og inn á Vatnajökul
vestanverðan. Síðan er haldið niður í Eldgjá, yfir Syðri-Ófæru og
niður Skaftártungu.
Skálar eru víða á leiðinni, s.s. í Landmannahelli, Landmannalaugum,
Kýlingum og Hólaskjóli. Það er óhætt að fullyrða, að þessi landshluti
lætur engan sem um hann fer, ósnortinn. Austurleið hf. heldur uppi
áætlunarferðum um Fjallabaks- eða Landmannaleið á hverjum degi á
sumrin með viðkomu í Landmannalaugum og Eldgjá.
Beittu músinni á
staðina á kortinu til að finna nánari upplýsingar!

Svæðiskort |