|
SÖGUFERÐ UM VESTURLAND
Á EIGIN VEGUM
Tillaga að
3 daga söguferðferð um Vesturland
Þessi
ferð byrjar frá Reykjavík um Leirár og Leirársveit.
Borgarfjörðurinn
og Mýrarnar eru þrungnar af sögu og fögrum stöðum, sem vert er að huga að
áður en haldið er út á Snæfellsnes.
Þar er ekki síður um auðugan garð að gresja að þessu leyti og bezt er að
láta ekkert fram hjá sér fara.
Ferð umhverfis Snæfellsnes er ógleymanleg og ekki má gleyma að
komast í návígi við nokkrar eyjanna í Breiðafirði í leiðinni.
Þá er Skógarströndin ekin til Búðardals og ekki má gleyma að koma
við að Eiríksstöðum í Haukadal og minnast landafundanna áður en haldið er um
Bröttubrekku til baka.
Dagur 1:
Reykjavík-Leirársveit-Borgarnes-Snæfellsnes-Ólafsvík
Það er hægðarleikur að nota heilan
dag á leiðinni um Mýrar fyrir Snæfellsjökul til Ólafsvíkur með viðkomu í
Eldborg, Gerðubergi, að Ölkeldu,
Búðum, Arnarstapa, Hellnum
og Hólahólum svo eitthvað sé nefnt.
Þá taka við Gufuskálar,
Hellissandur og Rif áður en náttstað er náð í
Ólafsvík.
Á Arnarstapa bjóðast ferðir upp á Snæfellsjökul og bátsferð meðfram lágum
fuglabjörgum, hvort tveggja ógleymanlegt.
Dagur 2: Ólafsvík-Grundarfjörður-Stykkishólmur
Dagurinn nýtist vel til skoðunar frá Ólafsvík og nánari skoðunar á stöðum á stuttri leið
um Grundarfjörð
til
Stykkishólms.
Það er upplagt að leggja smálykkju á leið sína um gamla veginn
fyrir Hraunsfjörð og aka um hluta Berserkjahrauns og síðan niður að
Bjarnarhöfn til að smakka á hákarlinum hjá Hildibrandi og skoða kirkjuna
hans og annað smálegt, sem hann hefur safnað.
Hólmarar hafa eignast heilsulind, nýja sundlaug með mjög heilnæmu
vatni úr borholu í grennd.
Dagur 3:
Stykkishólmur – Búðardalur – Reykjavík.
Ekið er hjá litríku
Drápuhlíðarfjallinu, fyrir Álftafjörð og um Skógarströnd til
Búðardals.
Örnefni á leiðinni minna á söguna, m.a. landafundina og Eirík rauða.
Því er ekki úr vegi að heimsækja nýbyggða endurgerð af bæ Eiríks að
Eiríksstöðum í Haukadal áður en haldið er yfir Bröttubrekku í
Bifröst
í
Borgarfirði og
síðan til Reykhots og
Húsafell og
þaðan heimleiðis um Skorradal til
Reykjavikur.

Kort
Barðaströnd
Borgarfjörður
<>
Snæfellsnes
<>
Búðardalur
<>
Kaldidalur
Arnarvatsheiði
& Tvidægra
|