|
Laugafell og
Laugafellshnjúkur (892 og 987 m) eru norðaustan Hofsjökuls og
sjást víða að. Hnjúkskvísl fellur á milli þeirra en Laugakvísl
norðan við fellið. Í munni Eyfirðinga heitir svæðið norðan
Geldingsár Laugafellsöræfi. Laugarnar, sem það er kennt við eru í
ás norðvestan Laugafells. Þar eru þrjár aðallaugar, sem mynda
volgan læk. Meðfram honum eru valllendisbrekkur með ýmsum gróðri,
þótt svæðið liggi í rúmlega 700 m hæð yfir sjó. Laugarnar eru
40-50°C heitar. Fellshalaflá, syðsti hestahagi áður en lagt er á
Sprengisandsleið, er suðaustan Laugafells. Við upphlaðna laug, sem
laugalækurinn rennur í, er sæluhús Ferðafélags Akureyrar, reistur
árið 1948 og endurnýjaður síðan. Þessi upphlaðna laug er í
manngerðri þró frá fyrri tímum. Þjóðsagan segir frá Þórunni á
Grund, sem dvaldi þarna með fólki sínu á meðan svartidauði gekk
yfir og þá hafi þróin verið klöppuð í móbergið. Gallinn við söguna
er sá, að Þórunn fæddist u.þ.b. öld eftir að svartidauði geisaði.
Leifar fornra mannvirkja fundust á bakka
Laugakvíslar. Munnmæli herma, að þessi Þórunn hafi haft þarna
selstöðu og gamlir Eyfirðingar kölluðu þessar leifar
Þórutóttarbrot. Þar sem jarðhitinn er mestur á svæðinu fundust
smámannvistarleifar. Auðvelt er að komast að Laugafelli frá
Sprengisandsleið, upp úr Eyjafjarðardal og upp úr Vesturdal í
Skagafirði, en erfiðari leið liggur frá Kjalvegi, norðan Geirsöldu
meðfram norðanverðum Hofsjökli.
Varmahlíð
(F-752) og um Vesturárdal 93 km,
Akureyri
(F-821) um Eyjafjarðardal 82 km <Laugafell>
Fjórðungsalda 31km
Kiðagil 38 km. |