|
Akrafjall (643 m) er milli Hvalfjarðar og
Leirárvogar austan Akraness. Fjallið er mjög áberandi frá
Reykjavík og er klofið til vesturs líkt og Hafnarfjall og Esja.
Það var umflotið sjó á jökulskeiðum. Gróðurteygingar eru
vítt og breitt um fjallið og svartbakurinn á varpstöðvar þar.
Enn þá fer margt fólk á hverju sumri til að safna eggjum í
Akrafjalli. Fýll hefur fjölgað í fjallinu síðan 1940.
Norðvestan miðju fjallsins er víða að finna fallegt
blágrýtisstuðlaberg. Ein af mörgum skondnum sögum um Arnes
Pálsson, útileguþjóf, gerist á Akrafjalli. Vitað var af veru
hans þar um skamma hríð sumarið 1756. Hópur manna fór að leita
hans og hann sá þann kost beztan að blanda sér í hóp leitamanna.
Eftir árangurslausa leit daglangt fóru menn til sins heima og
áttuðu sig þá fyrst á brellunni, en þá var Arnes á bak og burt. |