|
Syðstur
Austfjarða, sjávarlón eða fjörður, er stöðugt grynnkar og
minnkar vegna framburðar ánna Hofsár og Geithellnaár. Fyrir fjarðarmynnið
gengur sandrif, Starmýrartangi, er hann ekki breiðari en svo að stórbrim
ganga yfir hann. Álftafjörður er allmikill um sig en grunnur og þorna
stór svæði af honum um fjöru, en hann er með útrennsli um
Melrakkanesós. Nokkrar eyjar eru á firðinum. Brimilsnes og Lynghólmi
heyra undir kirkjustaðinn Hof.
Þar er varp og beit. Nesbjörg heyra til Hærukollsness
en Skeljateigur Geithellna.
Inn af Álftafirði
gengur samnefnd sveit. Er undirlendi þar víða mikið og fjallafegurð
rómuð. Í fjöllunum inn af Álftafirði eru mjög þykk lög af
flikrubergi. |