|
Álftafjörður
er austasti fjörðurinn á Snæfellsnesi norðanverðu með Eyrar-
eða Narfeyrarfjall (382m) að austanverðu og Úlfarsfell að
vestan.
Geirríður, móðir Þórólfs bægifóts, bjó í dalskvompu í Eyrarfjalli
vestanverðu, Borgardal.
Hún byggði þar skála „um þjóðbraut þvera” og veitti öllum, sem
áttu leið um, frían beina, mat og drykk, eins og segir í
Eyrbyggja sögu.
Minjar um byggð í Borgardal eru fáar og smáar og hann
úrleiðis, þannig að gizkað er á, að hún hafi byggt skálann
sunnan Fremra-Borgargils upp af Lynghaga. |