|
Álftavatn er stöðuvatn við Miðveg á svokölluðum Laufaleitum. Það er alldjúpt
og talsverður silungur er í því eftir sleppingu fyrir nokkrum áratugum.
Álftir voru veiddar á
vatninu, þegar þær voru í sárum. Árið 1838 var
þeim hætt eftir að Benedikt bóndi í Fljótsdal drukknaði við
veiðarnar. Hann var á sundreið á eftir þeim, þegar slysið
varð. Tveir skálar Ferðafélags Íslands, sem rúma allt að
58 manns í kojum, eru við austurenda
vatnsins. Annar þeirra er ætlaður göngufólki á leiðinni milli Landmannalauga og
Þórsmerkur (Laugavegurinn).
Mynd: Skálar FÍ
Markarfljót 10
km <Álftavatn> Mælifellssandur
7 km. |