|
Arnarfjörður er mikill flói, sem opnast milli
Kópaness og Sléttaness. Hann er 5-10 km breiður og um 30 km langur
inn í botn Dynjandisvogs. Innanvert skiptir Langanes honum í tvær
álmur og heitir sú syðri Suðurfirðir en úr norðurálmunni ganga
Borgarfjörður og Dynjandisvogur.
Yzt að firðinum ganga sæbrött
hamrafjöll, einkum að norðan, og hvarvetna er undirlendi lítið. Um
miðbik norðurstrandar, í grennd við Hrafnseyri, fær landslagið
sérstakan svip. Þar eru dalir og skörð, nær engir klettar en annars
staðar kambar og strýtur. Arnarfjörður er allur djúpur nema sandrif
gengur út frá Langanesi. Þar út af og inni á Reykjafirði eru mikil
kalkþörungamið og hugsanlegt er, að hagstætt sé að vinna þar
kalkmjöl. |