|
Eldvörp
rétt austan vegarins til Grindavíkur, suður af Vogastapa. Er yngsta
hraunið á því svæði runnið þaðan en eldvarpið sjálft er dyngja. Í
Arnarsetri urpu fyrrum ernir að sögn Bjarna Sæmundssonar.
Arnarstofninn hefur smám saman verið að
rétta úr kútnum á undanförunum árum og því má búast við að þeir setjist
að í öðrum landshlutum er fram líða stundir.
Talsvert er
um haförn á Breiðafjarðarsvæðinu.
Á Reykjanesskaganum eru fuglabjörg í Hafnabergi og Krýsuvíkurbjargi.
Þar eru toppskarfar, síla- og bjartmávar, álka, Lundi, langvía og
stuttnefja. Teista býr víðast um sig í sprungum og í skjóli
stórgrýtisins neðst í fuglabjörgunum. Þórshani fannst til skamms tíma
við Sandgerði og sendlingur og snjótittlingur verpa umhverfis bæinn.
Við Garðskagavita er eini opinberi fuglaskoðunarstaður landsins.
|