|
Arnarstapi er lítið útgerðarpláss undir
Stapafelli á milli Breiðuvíkur og Hellna. Norðan í fellinu er
sönghellir, þar sem Bárður Snæfellsás er sagður hafa búið. Vitinn
er frá 1941. Þar var verzlunarstaður á
einokunartímanum. Fuglalíf meðfram ströndinni og gjárnar, sem
brimið hefur skapað, er mjög áhugavert. Þegar brimar, gýs sjórinn
upp úr gjánum (Hundagjá, Miðgjá og Músarhola). Vestan við
gjárnar, á bak við minnismerkið um Bárð Snæfellsás (Ragnar
Kjartansson) er Gatklettur.
Umboðsmenn konungsjarða sátu þar frá
árinu 1565 og oft sýslumenn og aðrir höfðingjar. Á 19. öld sátu
þar einnig amtmenn. Nýaldarsinnar, sem trúa á útgeislun orku frá
Snæfellsjökuls, safnast gjarnan saman á Arnarstapa eða Hellnum hvert sumar til að njóta
hennar og iðka þar ýmsar kúnstugar æfingar. Ágætis gönguleið
liggur frá Arnarstapa yfir Jökulháls til Ólafsvíkur (u.þ.b. 4
klst.).
Einnig er hægt að aka þessa leið á jeppum og af
háhálsinum er oftast gengið á jökulinn (1446m). Fyrirtækið
Snjófell býður snjóbíla- og snjósleðaferðir frá jökulröndinni
þar uppi. Önnur vinsæl gönguleið er á milli Arnarstapa og Hellna
(u.þ.b. 3 km). með ströndinni til vesturs. Vegalengdin frá
Reykjavík er um 188 km um Hvalfjarðargöng.
Stapafell (526m; móberg). Vegur
liggur upp austanverða hlíð fjallsins yfir Jökulháls til
Ólafsvíkur. Hann verður fær um leið og snjóa leysir
efst. Hann er notaður til að flytja fólk að jökulrönd.
Efst á fjallinu er svokallaður Fellskross, sem er fornt
helgitákn, enda er fellið bústaður dulvætta.
Botnsfjall er norðaustan vegarins upp. Þar er
Rauðfelds- eða Rauðfeldargjá, sem klýfur fjallið niður í
rætur. Það er hægt að ganga inn að fossinum í botni
hennar, en hafa skal í huga, að ævinlega er hrunhætta í
svona gjám. Rauðfeldar Þorkelssonar er getið í
Bárðarsögu Snæfellsáss en Bárður var föðurbróðir hans.
Eitt sinn, þegar Rauðfeldur og bróðir hans, Sölvi voru að
leik með Helgu dóttur Bárðar, ýtti Rauðfeldur henni á ísjaka
frá landi og hún barst til Grænlands. Bárður varð óður
af reiði, því hann taldi dóttur sína af. Hann tók
bræðurna undir hendur sér og fleygði Rauðfeldi í gjána, sem
var nefnd eftir honum, og Sölva varpaði hann fyrir
sjávarhamra austan Arnarstapa (Sölvahamar). |