|
Arnarstapi er hóll rétt
við þjóðveginn í austanverðu Vatnsskarði.
Þaðan er útsýni gott yfir mestan hluta Skagafjarðar og
skammt er í Víðimýrarsel og Víðimýri (kirkja).
Þórðarsaga Hreðu segir frá bardaga þeirra Þórðar og
Eindríðar stýrimanns og liðsmanna hans.
Þórður drap sex þeirra og særði Eindríða til ólífis en
lét græða sár hans.
Uppi
á Arnarstapa er minnisvarði Klettafjallaskáldsins Stefáns G.
Stefánssonar (1853-1927), sem var gerður eftir fyrirsögn Ríkharðs Jónssonar úr
hlöðnu grjóti og reistur 1953 á aldarafmæli Stephans G.
Lágmyndirnar
á honum sýna skáldið á mismunandi aldri.
Reyndar má líta á hann sem minnisvarða um alla, sem urðu að
yfirgefa landið á árunum 1870-1914 (alls 16.200 manns: sjá
Hofsós /
Vesturfarasetrið.
Víðimýrarsel er austast á Vatnsskarði. Stephan G. átti þar heima í
æsku. Hann fæddist á næsta bæ, Kirkjuhóli, sem er í eyði.
Kirkjuhóll. Stefán var aðeins tvítugur, þegar hann fluttist
til Vesturheims. Hann nam land í Visconsin, síðan í Dakota og loks
í Alberta nærri bænum Markerville, þar sem hann bjó til dauðadags.
Þar kallaði alþýða manna hann „Klettafjallaskáldið”. Hann var
talinn til beztu ljóðskálda þjóðarinnar. Hann aðhylltist raunsæis-
og jafnaðarstefnu og var annálaður friðarsinni. Aðalrit hans,
Andvökur, var gefið út í sex bindum (1909-1938; 1956-1958). Bréf
hans og ritgerðir voru gefnar út í fjórum bindum (1938-1948).
Lítið eitt neðan við Arnarstapa eru rústir Brekkuhúsa,
sem voru beitarhús frá Brekku. Þar
hafðist stundum við fólk í húsamennsku og þar lézt Bólu-Hjálmar
árið 1875. Þessar rúsir
eru friðlýstar. Hannes
Hafstein orti kvæðir „Af Vatnsskarði” eftir að hann hafði notið
útsýnisins þaðan. |