|
Ás í
Fellum er fyrrum prestssetur, bær og kirkjustaður í
Fellum. Þar var kirkjan helguð Maríu guðsmóður í katólskri tíð.
Prestakallið var lagt niður 1883 og fell undir Valþjófsstað.
Kirkjan, sem nú stendur, var byggð 1898. Séra Sigurður Gunnarsson
(1848-1936), prófastur, var síðastur presta í Ásprestakalli. Hann
varð síðar prestur á Valþjófsstað og í Stykkishólmi.
Hörmulegt slys varð í Ási í nóvember 1946, þegar bóndinn,
Guttormur Brynjólfsson, dætur hans tvær og bróðurdóttir fórust,
líklega af völdum jarðsprengju. Árið 1941 höfðu brezkir
setuliðsmenn æfingu þar sem slysið varð. Þau stóðu öll uppi á
melhól, þegar eldblossi sást skyndilega, og þegar að var komið,
voru þau öll látin og með mikla áverka.
Gunnlaugur Þórðarson (1819-1861), rithöfundur og fræðimaður,
sem vann mikið í Kaupmannahöfn að fræðistörfum, var fæddur í Ási. Hann
vann m.a. að útgáfu fornrita og orðabók Richards Cleasbys og samdi
ritgerð um túna- og engjarækt. |