|
Ásbyrgi
er stórkostleg náttúrusmíð með allt að 100 m háum
hamraþiljum, sem hækka eftir því, sem innar kemur í
gljúfrið. Innst er Botnstjörn með mikilli grózku allt um
kring. Það er 3,5 km langt og um 1,1
km breitt. Í miðju þess er standberg, Eyjan, sem er allt að
250 m breið. Byrgið er skógi vaxið, einkum birki og
víðir auk reynis og nokkur þúsund barrtré voru gróðursett þar og
dafna vel. Fýllinn verpir í þvernhíptum hömrunum.
Talið er, að Ásbyrgi hafi myndazt við tvö hamfarahlaup,
annað fyrir 8-10 þúsund árum en hið síðara fyrir u.þ.b. 3 þúsund árum.
Síðan hefur Jökla fært sig til austurs. Þjóðsagan segir, að hinn áttfætti
hestur Óðins, Sleipnir, hafi stigið þar niður fæti, þegar goðið var á
yfirreið. Þótt Ásbyrgi sé hluti þjóðgarðsins í Jökulsárgljúfrum, er það í
umsjá Skógræktar ríkisins.
Vegur liggur alla leið inn í botn
Ásbyrgis.
Upplýsingamiðstöðin
í Asbyrgi
var
opnuð
19. apríl 2007.
Einar Benediktsson orti fallegt kvæði um það,
„Sumarmorgunn í Ásbyrgi”.
Eftir stofnun þjóðgarðsins Vatnajökuls, hinn 7. júní 2008, var
opnuð gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs í Ásbyrgi.
Upplýsingamiðstöð Vatnajökulsþjóðgarðs í
Ásbyrgi.
Sími.: 470-7100
asbyrgi@vip.is
|