Ásbyrgi,

Gönguleiðir á Íslandi

Veðrið í Ásbyrgi

ÁSBYRGI
.

.

Ferðaáætlanir
Rútur-Ferjur-Flug


Ferðaheimur

Ásbyrgi er stórkostleg náttúrusmíð með allt að 100 m háum hamraþiljum, sem hækka eftir því, sem innar kemur í gljúfrið. Innst er Botnstjörn með mikilli grózku allt um kring. Það er 3,5 km langt og um 1,1 km breitt. Í miðju þess er standberg, Eyjan, sem er allt að 250 m breið. Byrgið er skógi vaxið, einkum birki og víðir auk reynis og nokkur þúsund barrtré voru gróðursett þar og dafna vel. Fýllinn verpir í þvernhíptum hömrunum.

Talið er, að Ásbyrgi hafi myndazt við tvö hamfarahlaup, annað fyrir 8-10 þúsund árum en hið síðara fyrir u.þ.b. 3 þúsund árum. Síðan hefur Jökla fært sig til austurs. Þjóðsagan segir, að hinn áttfætti hestur Óðins, Sleipnir, hafi stigið þar niður fæti, þegar goðið var á yfirreið. Þótt Ásbyrgi sé hluti þjóðgarðsins í Jökulsárgljúfrum, er það í umsjá Skógræktar ríkisins.

Vegur liggur alla leið inn í botn Ásbyrgis. Einar Benediktsson orti fallegt kvæði um það, „Sumarmorgunn í Ásbyrgi”.


TIL BAKA          Nat.is - pósthólf 8593, 108 Reykjavik- sími: 898-0355 - nat@nat.is- um okkur - heimildir          HEIM