|
Bakrangi (702m) er
við vesturhorn Skjálfandaflóa, yzt í Köldukinn. Kotadalur skilur
hann frá Víknafjöllum. Norðan- og austantil er þverhnípi í
sjó fram. Austurhliðin er oft kölluð Ógöngufjall en Galti frá
sjó. Skuggabjörg var nafn þessa fjalls á fyrri tíð.
Í Íslandklukku Halldórs Laxness stendur:
„Það er til fjall í Kinninni fyrir norðan, sem heitir
Bakrangi, ef maður sér austaná það, Ógaungufjall, ef maður
stendur fyrir vestan það, en utanaf Skjálfanda kalla
sjófarendur það Galta." |