|
Bárðarbunga er í norðvestanverðum
Vatnajökli.
Hún er tæplega 2000 m há, annar hæsti staður landsins, og þverhnípt
upp frá Vonarskarði. Aðalskriðjökullinn frá henni er
Köldukvíslarjökull en auk hans byltast nokkrir litlir falljöklar
niður í 1200-1500 m hæð. Hinn 14. september 1950 fórst þar
Loftleiðaflugvélin Geysir. Sex dagar liðu áður en björgunarsveit
frá Akureyri komst á skíðum frá
Kistufelli
til að bjarga áhöfninni, sem komst öll af.
Bandarísk flugvél af DC-3 gerð lenti á jöklinum til að bjarga
fólkinu en gat ekki hafið sig til flugs aftur.
Hún stóð þar til vors, þegar
Loftleiðamenn grófu hana upp og komu henni niður af jöklinum milli
Skaftár og Hverfisfljóts, þar sem heitir Fljótsoddi, og flugu henni
til Reykjavíkur. Þessi björgunarafrek eru í hávegum höfð, enda
kraftaverk að enginn færist og DC-3 vélin skaut stoðum undir vöxt og
viðgang Loftleiða. Margir leiðangrar voru sendir til að ná farmi
Geysis. |