|
Barðsneshorn, stundum kallað Horn, er yzta táin
á Barðsnesi, sem er útvörður Norðfjarðarflóa að austan.
Hornið er mjög sæbratt og fjallið þar inn af er úr ríólíti en
ofan á því eru þykk lög af brotabergslögum og gjósku. Líkt og
annars staðar á Austfjörðum hallar berglögunum þar bratt til
vesturs og líkur benda til, að þarna séu leifar af stórri
eldstöð, sem sjórinn hefur veðrað að mestu.
Ríólítið kemur
skírt fram í hinum litríku Rauðubjörgum, vestast á nesinu.
Þarna finnast baggalútar, sem eru líka kallaðir hreðjasteinar,
grænn biksteinn og niðri við sjó eru uppréttir, kolaðir
trjástofnar, allt að einum metra í þvermál. Sumir telja þessa
stofna elztu gróðurleifar landsins (15 millj. ára). Á nesinu voru
fyrrum fimm bæir, þegar flest var, og útsýni er frábært á
góðum degi. |