|
Barnafoss er í Skjálfandafljóti á móts við
bæinn Barnafell í Ljósavatnshreppi. Þarna fellur fljótið í
þröngu og allt að 100 m djúpu gljúfri, sem djarfhugar hafa
stokkið yfir, ef trúa má sögum og sögnum. Klakabogi myndast yfir
fossinn í miklum frostum og stundum var fé rekið yfir hann á
veturna til beitar í Þingey. Oft var strengdur kaðall yfir ána
við fossbrúnina til að flýta fyrir brúargerðinni. Mæðgin tvö
runnu á svelli heiman frá bæ niður að fossi árið 1925 og gátu
enga björg sér veitt. Fjórtán ára sonur konunnar sá atburðinn
og batt saman alla spotta, sem hann fann heima á bæ og fetaði sig
síðan niður til móður sinnar og bróður og bjargaði þeim.
Tveimur árum síðar fékk hann
viðurkenningu úr sjóði Andrew Carnegies. Þessi drengur hét
Sigurður Benediktsson (1911-1970), sem varð kunnur fyrir
blaðamennsku, útvarpsþætti og listmunauppboð.
Nafngiftir
bæjar og foss eru sögð dregin af því, að börn hafi eitt sinn verið að leik í tunnu á hlaðinu
og að tunnan hafi oltið með þau í gljúfrið, þar sem þau fórust. Bærinn
er í eyði. |