|
Baula Borgarfjörður,

Gönguleiðir
Ísland |
BAULA
|

 |
Baula (934 m), prýði Borgarfjarðar, er keilumyndaður bergeitill úr súru bergi
(laccolith; grunnt innskot) vestan Norðurárdals
á sýslumörkum Dala- og Mýrarsýslu. Hreinir
hraungúlar eru ekki til á Íslandi. Líklega eru
Hlíðarfjall, Hágöngur o.fl. af sama toga og
flest orðin til undir jökli.
Baula er brött uppgöngu,
gróðurlaus og skriðurunnin. Rýólítkvika er
oftast mjög seigfljótandi, þannig að hún hrúgast upp í troðgosum
og myndar keilulaga gúla. Útsýni af tindinum er
geysivítt. Skildingafell og Litla-Baula eru vestan og
norðan Baulu umhverfis Sátudal.
Þaðan rennur
Dýrastaðaá í gljúfrum og fossaföllum niður í
Norðurá
hjá Hóli og Hafþórsstöðum. Þjóðsagan segir frá tjörn uppi á Baulutindi. Þar á að vera
óskasteinn, sem flýtur upp einu sinni á ári.
Baula var fyrst klifin árið 1851 (Halldór
Bjarnason frá Litlu-Gröf), og þótti það talsvert afrek. |
|
.

Ferðaáætlanir
Rútur-Ferjur-Flug

Ferðaheimur |