|
Bergþórshvoll er prestsetur og bær í Vestur-Landeyjum. Kirkjurnar í
Akurey og á Krossi tilheyra prestakallinu. Bergþórshvoll stendur á
lágri hæð eins og nafnið bendir til og skammt austan bæjar er Affall.
Hæsti hluti hvolsins er kallaður Floshóll með kvos, sem er 15-20 m að
þvermáli. Eyðibýlið Káragerði með Káragröf og Káratjörn er litlu
vestar. Efstu hlutar lands Bergþórshvols eru kallaðir Línakrar og þar
má enn þá greina fornar garðhleðslur (friðlýst).
Njálssaga er víðlesnust Íslendingasagna. Hún segir m.a. frá
Njáli Þorgeirssyni, konu hans Bergþóru, börnum þeirra, vinum og
tengdafólki. Synirnir voru þrír, Grímur, Helgi og Skarphéðinn, allir
miklir vígamenn en Skarphéðinn þó mestur.
Hefndaraðgerðir þeirra
vegna vígs Gunnars Hámundarsonar að Hlíðarenda leiddu ógæfu yfir
fjölskylduna, þegar 100 manna lið gerði atlögu að bænum og brenndi
hann. Kára Sölmundarsyni, tengdasyni Njáls, tókst að komast úr
eldinum og hefna þessa illvirkis.
Þrátt
fyrir rannsóknir fornleifafræðinga að Bergþórshvoli, hefur ekki enn þá
tekizt að finna merki um Njálsbrennu. Þarna fundust þó brunarústir
sofnhúss og fjóss frá því um 1100 en Njálsbrenna varð árið 1011
samkvæmt Njálssögu. Leifar af byggi og haugafræi fundust einnig og í
ljós kom, að fjósið gat hýst 30 gripi. Bergþórshvoll er friðlýstur.
Myndin er af hluta bæjarhúsa að Keldum á Rangárvöllum. |