|
Úti af Kollumúla, milli
Vopnafjarðar og Héraðsflóa, er lítil 9 ha eyja, Bjarnarey. Vitinn þar
var reistur 1917 og endurnýjaður 1946. Eyjan er algróin, þar er
fuglalíf fjörugt og selalátur og veiðar voru stundaðar til skammst
tíma.
Búið var í eyjunni með hléum og
við manntalið 1703 voru skráðir tveir ábúendur þar auk 10 manns í
heimili. Jón Guðmundsson lærði bjó þar í útlegð 1632-35 til að forðast
málssókn vegna galdra. Fisk- og hákarlaveiðar voru stundaðar frá
Bjarnarey. Veðurathugunarstöð er í eyjunni. |