|
Bjarnarey
er fjórða stærsta eyja Vestmannaeyja. Hún liggur austan
Heimaeyjar og suðvestan Elliðaeyjar. Hæst rís hún í Bunka
(164 m), sem er gamall eldgígur. Bezti uppgöngustaðurinn er
í Höfn, að norðaustanverðu. Í vestanátt er gott var
fyrir báta í Haganesbót. Eyjan er grösug og talin góð
vetrarbeit fyrir 128 sauði. Heyskapur var þar nokkur.
Geysimikið er af lunda og
öðrum svartfugli í eyjunni og fugla- og eggjatekja var og er enn þá
mikil. Veiðimenn liggja úti við lundaveiðar og eggjatöku og hafast
við í veiðikofanum á eyjunni.
Oft verður vart hvala umhverfis
eyjuna sem og aðrar Vestmannaeyjar. Meðal hvalategunda, sem hafa sézt
eru búrhvalir, hnúfubakar, gráhvalir, háhyrningar, ýmsar höfrungategundir,
hnísur og hrefnur. |