|
Bláfjöll
teygjast til vesturs frá Vífilsfelli ofan Sandskeiðs á þjóðleiðinni
austur fyrir fjall. Vegur liggur um Bláfjallasvæðið, allt frá þjóðvegi
nr. 1 til Hafnarfjarðar. Árið 1973 var það friðlýst sem fólkvangur, sem
Hafnarfjörður, Keflavík, Kópavogur, Selvogshreppur, Seltjarnarnes og
Reykjavík standa að. Fólkvangurinn er ætlaður til útivistar og þar
hefur verið komið upp stærstu skíðaaðstöðu landsins síðan 1968.
Náttúruunnendur finna þar margt við sitt hæfi en bezt er að fara varlega
um hraunbreiður svæðisins, því víða leynast alldjúpar skvompur undir
fótum. Svæðið er upplagt til skíðaiðkunar, bæði bruns og skíðagöngu.
Vélknúin ökutæki, snjósleðar o.þ.h. eru bönnuð á skíðasvæðunum. |