|
Prestsetrið og kirkjustaðurinn Borg stendur við botn Borgarvogs,
norðan og austan Borgarness. Í katólskum sið var kirkjan helguð Mikael erkiengli. Kirkjan, sem
nú stendur, var reist 1880 og útkirkjur eru á
Álftanesi og á Ökrum. Kirkjur hafa staðið að
Borg síðan árið 1003.
Skalla-Grímur Kveldúlfsson
nam Borgarfjörð og byggði sér bæ að Borg.
Hann stundaði búrekstur víðar um héraðið um sína daga. Egill
sonur hans tók við búi föður síns. Hann var var garpur
mikill, sparsamur á fé og skáld gott. Konungar og höfðingjar
erlendis fengu að finna fyrir víkingseðli hans, því hann var
tiltölulega friðsamur hérlendis. Kunnustu kvæði hans eru
Höfuðlausn, sem varð til, þegar hann þurfti að bjarga lífi
sínu frá reiði erkióvinar síns, Eiríks blóðaxar, og
Sonartorrek, sem hann orti um sonamissi sinn. Hann gat ekki
hefnt harma sinna vegna dauða sonanna tveggja, þar eð goðin höfðu
tekið þá frá honum og harmurinn dvínaði við að yrkja. Skalla-Grímur var
fluttur til greftrunar að Naustanesi og heygður, þar sem
Skalla-Grímsgarður er nú í Borgarnesi.
Samkvæmt
Laxdælu var Kjartan Ólafsson fluttur til
greftrunar að Borg, þegar kirkjan þar var nývígð, og liggur
þar grafinn. Kunnastur veraldlegra höfðingja,
sem sátu Borg, var Snorri Sturluson. Hann sótti þangað
auð sinn með því að kvænast Herdísi
Bessadóttur prests og sat staðinn 1202-1206. Þá skildu þau og Herdís sat þar áfram, þegar Snorri fluttist
að Reykholti.
Minnismerkið Sonartorrek eftir Ásmund Sveinsson var reist 1985 við Borg. Skammt frá Borg á Mýrum er
einhver mesta laxveiðiá landsins,
Langá, sem á upptök sín í
Langavatni á
Mýrum. |