|
Bærinn
Botn er í Botnsdal, sem gegnur inn úr Súgandafirði og ofan hans er
Botnsheiði, sem var ekin áður en göngin voru grafin til Ísafjarðar
og Önundarfjarðar.
Dalurinn er vel gróinn, engjar, birki og burkni.
Í Hafradal ofan Botns var tekinn surtarbrandur fyrrum og í
kringum 1917.
Í síðari heimsstyrjöldinni var gripið til þessa eldsneytis
á ný og margir Færeyingar unnu við öflun þess.
Göngin,sem
eftir standa eru u.þ.b. 100 m löng, full af vatni, sem er notað fyrir
heimarafstöð.
Nafngjafi fjarðarins, Hallvarður súgandi, er sagður hafa búið
að Botni og liggi heygður í hólnum Súgandi.
Mælt er með stuttri göngu að fallegum fossi í mynni
Hafradals. |