|
Botnssúlur eru þyrping tinda útdauðrar
megineldstöðvar inn af Botnsdal í Hvalfirði og skamman veg frá
Þingvöllum. Hæsti tindurinn er 1095 m hár og hinn nyrzti er
lægstur en samt illkleifastur. Útsýni af Botnssúlum er frábært
á góðum degi en gæta verður allrar varúðar við fjallgönguna
á mjóum rimum og í sísnævi. Fjallgangan tekur u.þ.b. þrjá
tíma.
Milli Botnssúlna og Ármannsfells liggur gömul alfaraleið um
Gagnheiði. Þá liggur leið vestan Botnssúlna, Leggjabrjótur fram
hjá Sandvatni niður í
Brynjudal
eða
Botnsdal.
Þessar gönguleiðir er
bezt að hefja við Svartagil í Þingvallasveit, ef haldið er af
stað þeim megin. Þessar gömlu leiðir er orðin allfjölfarin á
ný, því að gengið er um fagurt land að
Hvalvatni
niður í Hvalfjörð eða áfram með Veggjum að
Eiríksvatni
og niður í Skorradal eða jafnvel í
Lundareykjadal.
Vinsæl gönguleið liggur um Kjöl (787m),
milli Þingvallasveitar og Hvalfjarðar, vestan Botnssúlna.
Hefjist gangan í Hvalfirði, er lagt í hann frá Fossá við
mynni Brynjudalsvogar. |