|
Breiðabólstaður er kirkjustaður og prestsetur í Vesturhópi. Katólskar
kirkjur voru helgaðar Ólafi helga, Noregskonungi. Kirkjurnar að
Vesturhópshólum, Tjörn og Víðidalstungu voru útkirkjur. Kirkjan, sem nú
stendur, var vígð árið 1893.
Í kringum
aldamótin 1100 bjó Hafliði Másson að Breiðabólstað. Þar voru íslenzk
lög fyrst færð í letur árið 1117 og þau endurskoðuð til að vinza úr
úrelt lög. Einnig var hugað að endurbótum og leitað ástæðna til
setningar nýrra laga. Árið 1974 lét Lögmannafélag Íslands reisa og
afhjúpa minnisvarða um lagaritunina að Breiðabólstað.
Hafliði
Másson deildi við Þorgisl Oddason á Staðarhóli í Saurbæ. Þessar deilur
leiddu til þess, að Þorgils hjó þrjá fingur af Hafliða, þar sem þeir
voru staddir á Alþingi, og Hafliði krafðist mjög hárra bóta. Þá hafði
Skafti Þórarinsson, prestur að Mosfelli, á orði að: Dýr mundi Hafliði
allur, ef svo skyldi hver limur. |