|
Brú er efsti bær
í Jökuldal og einhver landstærsta jörð landsins, rétt vestan Jökulsár
á Brú. Þar var bænhús
til 1892, þegar kirkja bar byggð, en hún var flutt að Eiríksstöðum
1912. Kláfferja var þar
yfir Jöklu þar til brúin var byggð 1953 og vegasamband komst á við
Hrafnkelsdal.
Jeppavegir
liggja vítt og breitt um hálendið frá Brú, m.a. vegur að Sænautavatni
og upp á gamla þjóðveginn. Þá
liggjur slóð beint áfram á Kverkfjallaveg.
Syðri leiðin liggur um Laugarvalladal meðfram Hafrahvammagljúfrum
og vestur um Brúaröræfi að Grágæsadal og brúnni á Kreppu.
Árið
1494 flúði allt fólkið pláguna og settist að í Dyngju í Arnardal
í eitt ár og síðan næstu tvö árin í Netseli við Ánavatn.
Þáverandi bóndi, Þorsteinn jökull, var mikill ættstólpi.
Veðurstöð var sett upp að Brú árið 1957. |