|
Brúardalir eru á Brúaröræfum inn af Brú,
efsta bæ á Jökuldal. Þessir dalir eru Laugarvalladalur,
Sauðárdalur, framhald hans, Vesturdalur og Fagridalur auk nokkurra
minni dalverpa. Bærinn Laugarvellir var á Laugarvalladal, þar sem
er jarðhiti, baðlaug og sæluhús. Leiðir á þessar slóðir
liggja frá Brú, Möðrudal og frá Jökuldalsheiði.
Frá Brúardölum er örskammt að fara að Hafrahvamma- og
Dimmugljúfrum í grennd við Kárahnjúka,
þar sem fyrirhugað er að stífla Jökulsá á Brú fyrir
Fljótsdalsvirkjun. Sagnir eru til um mikla byggð inn með Jöklu,
þannig að bærinn Brú var í miðri sveit.
Samkvæmt sögnunum var
kirkjustaður á Bakkastað nokkru innan Brúar, þar sem rústir
sjást enn þá. Bakkastaður eyddist, þegar sóknarfólkið
dansaði og lét öllum illum látum í kirkjugarðinum á sjálfa
jólanótt. Það sökk allt í jörð niður, líkt og í þjóðsögunni
um dansinn í Hruna. Auk Bakkastaðar eru
tilgreindir bæirnir Hóll inni undir jökli, tveir bæir með nafninu
Hringbotnar og Fossnes. Talið var að ýmislegt óhreint væri á sveimi í
Brúardölum og reimleikar miklir. |