|
Brúnavík er fyrsta víkin sunnan
Borgarfjarðar eystri. Hún er nokkuð breið og snýr móti
norðaustri. Upp af henni er allbrattur dalur með grónum
melhryggjum og mýrlendi. Þarna var löngum tvíbýli, þar til víkin
fór í eyði árið 1944. Búsetuskilyrði þóttu góð þarna fyrrum, góð
tún og engjar, nokkur fjörubeit og snjólétt að jafnaði.
Lendingin í víkinni var allgóð. Þar er nú neyðarskýli SVFÍ.
Klettarnir í botni víkurinnar eru ríólítmyndanir, sem sandfjaran ber
keim af, og margir hafa gaman af því að rölta um hana. |