|
Vitinn
var
hlaðinn úr grjóti, sem lagt var í sandsteypu, og múrhúðuð að
utanverðu. Utanmál eru 4,1 x 4,9 metrar, útveggir misþykkir, frá 40
upp í 80 cm. Loft er aðeins yfir litlum hluta vitans með litlum turni,
sem gekk upp úr þaki og var ljósbúnaður í honum. Bárujárn á þaki er
bikað. Í vitanum er herbergi ætlað gæslumanni, sem ætlað var að dvelja
í vitanum, þegar þurfa þótti. Hann var byggður 1899 og
endurnýjaður 1908 og 1918.
Nýr viti var reistur á Dalatanga árið 1908 úr steinsteypu og voru þá
ljóstæki gamla vitans flutt í nýjan vita á Brimnesi, nokkru norðar.
Veggir gamla vitans voru illa farnir og þak að falli komið, þegar
ákveðið var að gera hann upp í upphaflegri mynd á níunda áratug
tuttugustu aldar. Viðgerðir fóru fram árið 1985 og voru þær kostaðar
af Siglingamálastofnun Íslands. Hefur vitanum verið sinnt reglulega
síðan. Þjóðminjasafn Íslands kom fyrst að málum árið 2003.
Mynd: Þjóðminjasafn. |