|
Deildartunguhver er líklega vatnsmesti hver jarðar. Vatnsmagnið er
u.þ.b. 180 l/sek. af 98°C heitu vatni, alls
40%
alls heits vatns, sem kemur náttúrulega upp á yfirborðið í
Borgarfirði. Hvergi annars staðar á landinu sprettur upp meira
heitt vatn en í Borgarfirði.
Mikil
gróðurhúsarækt er í Deildartungu og víðar í grenndinni.
Friðað afbrigði af burknanum skollakambi
(blechnum spicant) vex við hverinn. Hverinn var virkjaður að fullu til hitaveitu á Akranesi (64 km), í
Borgarnesi (34 km) og á nokkrum bæjum á leiðinni.
Mæðiveikinnar, sem herjaði á sauðfé landsmanna um áratugaskeið, varð fyrst vart á Deildartungu og
veiking var gjarnan kölluð Deildartunguveikin í upphafi.
Þórir
Þorsteinsson, prestur að Deildartungu, og kona hans létust í suðurgöngu á 12. öld
og í kjölfarið komu upp hin sögufrægu Deildartungumál vegna
arfaskipta. Rituð hefur verið bók um Deildartunguætt (Ari Gíslason
og Hjalti Pálsson). |