|
Djúpalónssandur er malarvík með hraungjám í botni
á milli Einarslóns og Dritvíkur. Þar var löngum stór verstöð
fyrrum. Eitt íveruhúsa sjómanna hefur verið endurhlaðið, en er að
hruni komið á ný. Aflraunasteinarnir, Fullsterkur (154 kg), Hálfsterkur (100 kg), Hálfdrættingur
(54 kg) og Amlóði (23
kg), liggja fyrir
neðan stall við stíginn niður frá bílastæðinu. Hraunmyndanir, s.s.
Gatklettur fyrir ofan aflraunasteinana og Draugahellir, eru sérstakar og
fallegar.
Járnbrakið í fjörunni er að
hluta úr enska togaranum Epine GY-7, sem strandaði austur af
Dritvíkurflögum kvöldið 13. marz 1948. Björgunarsveitir frá Arnarstapa,
Hellnum og Hellissandi brugðust við. Aðstæður voru erfiðar, vont veður,
aðfall og mikið brim. Menn sáust á skipinu á hvalbak, á stýrishúsi og
bundnir við reiðann. Stórsjóir gengu yfir skipið í aðfallinu. Einn mann
með lífsmarki bar upp í fjöruna. Með útfallinu tókst að skjóta út línu, sem
skipverjar festu við mastrið. Aðeins fjórir menn voru eftir á
lífi og voru dregnir í land í björgunarstól. Fleiri skip hafa
strandað á svipuðum slóðum, m.a. Ása RE-18 21. desember 1925.
Skipverjar hröktust í björgunarbát í 7 klst áður en norskt
flutningaskip og þýzkur togari björguðu þeim. Fólk er beðið að hrófla ekki við járninu í sandinum.
Dritvíkingar urðu að sækja allt drykkjarvatn til
Djúpalónssands um Suðurbarða eða Víkurbarða. Tröllakirkja er fram
af nesinu nær Dritvík, sem er í djúpri kvos með hraun á allar
hendur. Sandurinn í víkinni heitir Maríusandur og þar standa tveir
klettar, kenndir við Bárð Snæfellsás, Bárðartrúss og Bárðarskip.
Sundið inn að víkinni þótti hættulegt, en lending var góð, þegar
inn var komið.
Öldum saman var Dritvík einhver fjölmennasta og
aflasælasta verstöð landsins. Oft réru þaðan 60-70 bátar og fjöldi
vermanna var þá 300-400. Talið er, að útgerð hafi hafizt í Dritvík
á 16. öld, en var farin að dragast saman á 19. öld. Tíu
þurrabúðir stóðu þar, þegar flest var. Verbúðirnar voru hlaðnar
úr grjóti, sem sandi var mokað að, og tjaldað yfir. Nú ber lítið
á rústum þessara verbúða nema leifum fiskigarða og fiskreita uppi á
hrauninu. Skipbrotsmannaskýli stendur í Dritvík. |